Greinar · 2. september 2026 · 12 mín. lestur
Niðjamót hjónanna Auðuns Ingvarssonar og Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur
Samantekt Konráðs Bjarnasonar föður míns um hjónin Auðun Ingvarsson og Guðlaugu Helgu Hafliðadóttur frá Dalsseli í Vestur-Eyjafjallahreppi

Niðjamót hjónanna Auðuns Ingvarssonar
og Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur
Dalsseli
Haldið að Hamragörðum undir Vestur Eyjafjöllum þann 6. ágúst 1994 á 125 ára afmæli Auðuns Ingvarssonar þar sem Páll Árnason langafi hans bjó í 15 ár.
Í tilefni þess er við hæfi að eftirfarandi samantekt berist í hendur niðja þeirra heiðurshjóna er gerðu Dalssel að víðþekktu rausnar- og menningarheimili í hálfa öld.
_____
Þegar flett er dagbókum Auðuns Ingvarssonar, kaupmanns og bónda í Dalsseli, sem hann hélt allt frá árinu 1885, þá 16 ára (f. 6.8.1869) vekur það athygli, hvað hann þá þegar í upphafi náði skipulegum tökum á viðfangsefninu og setur því fastar skorður. Hann beitir nær óbreyttri aðferð við skráninguna í áratugi, utan að hann leggur niður skrásetningu á tunglsstöðu, sunnudagstölu eftir kirkjuári og vikudagstölu frá upphafi árstíða. Hann raðmerkir í tölum og með upphafsstaf alla daga ársins og lýsir veðurfari þeirra með færri og fleiri orðum eftir veðureðli þeirra.
Hann greinir í upphafi dagbókarhalds síns frá árferði og atburðum, fiskifregnum og slysförum á sjó og landi. Á búskaparárum sínum í Dalsseli segir Auðunn í smáatriðum frá búskaparathöfnum sínum árið um kring, ferðalögum, gestakomum, verslunarháttum og markverðum viðburðum, framgangi í héraði svo og þjóðmálum.
Á seinni hluta 19. aldar var ekkert sem hét samfélagstryggð skólaskylda, en við fermingu voru gerðar lágmarkskröfur til lestrar-, skriftar- og reikningskunnáttu, sem réðist mjög af því hvað foreldrar gátu látið börnum sínum í té, eða hvort þau höfðu möguleika til að koma þeim til náms um tíma hjá þeim mönnum í sveit sinni er gátu og vildu miðla öðrum af þekkingu sinni.
Það má telja Auðunn algerlega sjálfmenntaðan, eins og raunin var um flesta bændasyni í þá daga þó langt næðu í lífsbaráttu sinni, utan þeirrar tilsagnar er hann fékk í skrift og reikningi hjá Sighvati Árnasyni hreppstjóra og alþingismanni í Eyvindarholti svo og lestrarkennslu í foreldrahúsum.
Það sem lyfti huga Auðuns upp yfir flatneskju hinnar sístritandi kyrrstöðu hins fátæka samfélags er hann var fæddur inn í, var erfðametnaður frá tiltölulega nálægum forfeðrum í embættismannastétt mann fram af manni beggja ætta sinna. Í föðurætt var það langafi hans Jón Guðmundsson hreppstjóri og héraðshöfðingi í Stóru-Mörk, dóttursonur séra Ólafs Thorlacíusar, beinn afkomandi Þorláks biskups Skúlasonar, og í móðurætt hinn dverghagi Páll Árnason í Syðstu-Mörk og víðar er var sonarsonur séra Egils Eldjárns, sem var langt aftur í ættir af skáldum og embættismönnum kominn. (Páll var langafi Auðuns í móðurætt).
Með Pál hinn dverghaga í huga og erfðasamband til Auðuns má geta þess að eftir fermingu sína var hann farinn að smíða spæni úr nauts- og hrútshornum og hafði Auðunn árið 1896 smíðað 346 spæni fyrir sveitunga sína og nærliggjandi sveitafólk. Fyrir smíði sína fékk Auðunn að mestu greitt í vörum.
Þá lærði Auðunn ungur maður bókband, líklega af Ágústi Úlfarssyni í Fljótsdal. Fyrir árið 1894 hefur Auðunn bundið inn um 80 bækur. Þessi iðnverk Auðuns og arðsemis- og viðskiptagildi þeirra ásamt með nákvæmri dagbókarfærslu áttu sinn þátt í að lyfta Auðunni upp í þá athafna- og umsvifaaðstöðu þar sem hann sat höfði hærri sveitungum sínum í áratugi, víðþekktur höfðingi heim að sækja.
Auðunn hóf búskap að Dalsseli í Vestur-Eyjafjallahreppi árið 1901, þá 32 ára ekkjumaður frá því hann missti fyrri konu sína Guðrúnu Sigurðardóttur eftir örstutt hjónaband 13.4.1899. En sonur þeirra Markús er í umsjá föður síns og Ingibjargar hálfsystur Auðuns er verður bústýra fyrsta ár hans í Dalsseli.
Ári síðar kvænist Auðunn seinni konu sinni Guðlaugu Helgu Hafliðadóttur f. 17.1. 1877. Þau voru gefin saman í hjónaband í Voðmúlastaðakirkju, Landeyjum 7.11. 1902. En þar í kirkjugarði var borin til moldar 6.6.1870, föðurmóðir Guðlaugar Helgu, Guðlaug Ásmundsdóttir.
Auðunn segir um konu sína í endurminningum sínum: "Hún stóð mér við hlið í blíðu og stríðu og gaf mér mörg mannvænleg börn."
Guðlaug var fædd 17.1.1877, að Fjósum í Mýrdal og voru foreldrar hennar Hafliði Narfason bóndi þar og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir. Hún giftist Auðunni Ingvarssyni bónda og kaupmanni í Dalsseli undir Eyjafjöllum og eignuðust þau 12 börn en 10 komust upp.
Móðurforeldrar Guðlaugar H. Hafliðadóttur voru Helga Þórðardóttir, f. 1816 og fyrri maður hennar Þorsteinn Jakobsson f. 3.12.1812, hann dó 43 ára frá ungum börnum þeirra. Þorsteinn var sonur Jakobs Þorsteinssonar bónda á Brekkum í Mýrdal og konu hans Karítasar dóttur Þorsteins bónda að Vatnsskarðshólum, Eyjólfssonar og konu hans Karítasar Jónsdóttur klausturhaldara á Reynistað.
Karítas Jónsdóttir kom norðan úr Skagafirði með móður sinni Þórunni Hannesdóttur Scheving um 1756 austur í Skaftafellssýslu og giftist Þorsteini bónda og smið að Vatnsskarðshólum. Karítas var dóttir Jóns Vigfússonar klausturhaldara að Reynistað en móðurfaðir hans var Jón biskup á Hólum Vigfússon, móðir hans Helga var því alsystir Þórdísar í Bræðratungu. Jón klausturhaldari kvæntist Þórunni Hannesdóttur sýslumanns að Munkaþverá en hún missti hann 1752, hún giftist séra Jóni Steingrímssyni "eldklerk" 1753.
Karítas Jónsdóttir frá Reynistað var því fyrsta kona Þorsteins á Vatnsskarðshólum og þar með langalangamma Guðlaugar húsfreyju í Dalsseli. Móðurmóðir Karítasar Jónsdóttur var Jórunn Steinsdóttir biskups á Hólum Jónssonar. Þegar séra Jón Steingrímsson kvæntist Þórunni Scheving móður Karítasar varð hún að sjálfsögðu hálfsystir dætra séra Jóns og hann fósturfaðir hennar. Um móðurmóður þeirra systra, Jórunni Steinsdóttur segir tengdasonur hennar séra Jón Steingrímsson í ævisögu sinni er hann kom í heimsókn til hennar þá prófastsekkju í Laufási í Eyjafirði. "Hún (Jórunn) hafði ein þau dægilegustu (gullfallegustu) kvenmannssönghljóð (kvenrödd) sem ég hef heyrt, sem hún hafði óskert til dauða, en hún burtkallaðist á áttræðisaldri. Blessuð veri minning hennar".
Móðurmóðir Guðlaugar í Dalsseli var Helga Þórðardóttir kona Þorsteins Jakobssonar bónda að Fjósum. Hún var dóttir Þórðar stórbónda að Teigi í Fljótshlíð og að Hvammi undir Eyjafjöllum, sem var f. um 1773, sonur Þorláks klausturhaldara á Þykkvabæjarklaustri f. 1743, sonur Þórðar Brynjólfssonar Thorlacius f. 1712, klausturhaldara í Þykkvabæjarklaustri, sonur Brynjólfs sýslumanns á Hlíðarenda Thorlacius f. 1681, en hann var sonur Þórðar biskups í Skálholti Þorlákssonar biskups á Hólum Skúlasonar.
Móðurfaðir Þorláks biskup Skúlasonar var Guðbrandur biskup á Hólum Þorlákssonar.
Það er því ljóst að Þorlákur klausturhaldari, afi Helgu Þórðardóttur húsfreyju að Fjósum, var þriðji embættismaður í beinan karllegg frá hinum fjölmenntaða og stórmerka biskup í Skálholti, Þórði Þorlákssyni og konu hans Guðríðar Gísladóttur sýslumanns á Hlíðarenda Magnússonar.
Örlagaskref Auðuns var tekið þegar Einar Benediktsson skáld og sýslumaður Rangæinga, gaf út verlslunarleyfisbréf, dagsett 1. desember 1905, sem heimilaði honum rekstur sveitaverslunar. Þetta leiddi til þess að Auðunn, tveim árum síðar eða 1907, tók þá djörfu áhættu að gera kaup við Vestmannaeyjakaupmann um húsagerðarvið til byggingar á tvílyftu timburhúsi í Dalsseli. En til þess þurfti að koma trjáviðnum í flotbúntum dregnum af vélbátum upp að sandströnd austan Markarfljóts. Þar var viðurinn á land færður og uppá reiðingshesta búinn í svonefndum dráttarklyfjum á reknum hestum yfir Markarfljótsála heim á Dalselshlað. Fyrir verki þessu stóð bróðir Auðuns, Jón bóndi að Borgareyrum. Heima í Dalsseli gengu brátt kunnáttumenn rösklega til verks og reistu á skömmum tíma eftir teikningu, Dalsselshús, tvílyft timburhús með kvisti og alþiljaðri vörugeymslu vestan við. Hús þetta taldist uppkomið veglegast hús síns tíma þar um slóðir.
Dalssel stóð í þjóðbraut og varð brátt mikilvægur áningarstaður og hið mikla húsrými gaf kost á barnakennslu fyrir sveitina. Auk þess hagræðis sem nær og fjarsveitir nutu nú vegna nálægðar matvöru- og búsáhaldaverslunar Auðuns nutu ótaldir nær og fjær hinnar rómuðu gestrisni Dalselshjóna.
Hér á eftir verður stiklað á stóru er nefndir verða nokkrir markverðir atburðaþættir í búskapar- og verslunarsögu Auðuns í Dalsseli.
Búgripastofn Auðuns eykst ásamt túnrækt og girðingum. Hann er virkur í framfarafélaginu Drífanda og fundir þess fara fram í Dalsseli. Á árinu 1911 verða framfarir í heyskap og aukin verslunarumsvif. Hann bíður eftir því að strandferðaskip skili honum vörum í Hallgeirseyjavör og í sama mánuði fyrst fyrir að vörur úr skipinu Hólar yrði komið á land í Landeyjum og þurfti að fara út í Garðsauka til að fá vitneskju í síma um að vörur hans hefðu verið settar upp á Eyrarbakka. Hann varð því að senda þangað mann með hesta og vagna. Þetta var í júlí og næsta sendiferð út á Eyrarbakka var eftir nýrri sláttuvél er Auðunn keypti fyrstur manna í sinni sveit. Sigurjón í Hvammi setti hana saman daginn eftir, þ.e. 27. júlí 1911 og var meðal annars slegið með henni Neðradalstún 3. ágúst. Til marks um verslunarþjónustuhætti á nefndu ári varð Auðunn að sækja símaþjónustu út í Garðsauka og senda mann með olíutunnu á hestvagni austur að Steinum 2. des. 1911.
Á árinu 1913 er Markús sonur Auðuns í Reykjavík og nemur ljósmyndagerð og orgelleik. Á því ári kemst sími austur að Miðey og bætir það mjög kaupsýsluumsvif Auðuns. En Markús tekur ljósmyndir og sýnir skuggamyndir, sem er nýlunda þar í sveit og víðar. Nú er að segja frá því að síðsumars 1913 var uppskipað við Holtsós því magni af símastaurum er þurfti til símalagningar undir Eyjafjöllum og út að Miðey. Varð þá símaverkstjóri Brynjólfur Einarsson að leita til Auðuns í Dalsseli til þess að hinir þungu og fyrirferðarmiklu staurar yrðu fluttir á lagningarlínuna fyrir uppsetningu á sumri 1914. Auðunn tók þetta verk að sér í ákvæðisverktaki fyrir kr. 70.00 pr. stykki. Hann lagði allt til þessa verks er með þyrfti, menn, hesta og sérbúna sleða fyrir snjó og ísilagða jörð.
Verk þetta hófst í byrjun febrúar 1914. Fyrir sumardag fyrsta höfðu allir staurar verið fluttir á tiltækna staði og á öðrum sumardegi var Auðunn kominn á vettvang með Magnús Knútsson fyrrikonu mág sinn til þess að telja þá og reyndust þeir þá 463 talsins.
Þegar símalagningin var hafin lét Auðunn þrjá menn vinna hjá símaverkstjóra með fjóra vagna og hesta. Um miðjan júní fékk Auðunn sína símastaura og línuefni vegna einkalagningar heim að Dalsseli. Þann 15. ágúst 1914 var heimasími Auðuns lagður inn í Dalsselshús og tekinn í notkun. Hafði Auðunn greitt hann að mestu úr eigin vasa.
Auðunn var frá upphafi deildarstjóri Sláturfélags Suðurlands og sótti aðalfundi þess árlega að Þjórsártúni og skilaði lokagreiðslum heim til sveitunga sinna. Hann stofnaði hrossaræktarfélag sveitarinnar með séra Jakobi Lárussyni í Holti og var formaður þess. Þeir keyptu kynbótahest og komu upp girðingu á vordögum 1916.
Auðunn var kosinn í hreppsnefnd 14. júní 1916 með flestum atkvæðum þriggja. Hann sat lengi í hreppsnefnd og einnig í sýslunefnd.
Auðunn var á leið frá Reykjavík 12. október 1918 og kominn austur á Hellisheiði þegar Kötlugos hófst. Hann gisti að Bitru í Flóa og var orðinn blindur á öðru auga og sjónlítill á hinu af öskufalli þegar hann kom austur að Stórólfshvoli næsta dag.
Fyrir hörku framgöngu Auðuns tókst að fá sóttkví framkvæmda til varnar spönsku veikinni í hans sveit frá 17. nóvember 1918. Fólst hún í gæslu frá Álum og tók Auðunn virkan þátt í henni.
Þann 2. júlí 1925 kom timburflutningaskip frá útlöndum upp að Holtsósi með allt að fjörutíu standarda af húsagerðarvið til Auðuns kaupmanns í Dalsseli og varð hann að fá mótorbáta frá Eyjum til þess að draga flotbúntin frá skipinu og upp að landi. Tók losun þess þrjá daga.
Þann 8. sama mánaðar fékk Auðunn matvörur á sama stað upp úr vöruskipinu Brú og stóð uppskipun úr því frá kl. 2 1/2 eftir hádegi og til kl. 5 að morgni. Hér eru dæmi um hverju Auðunn varð að kosta til aðdráttar í verslun sína áður en samgöngur komust í betra horf með vegum og brúm.
Þá er að segja frá því þegar Auðunn kaupir fyrstu bifreið í sveit sinni, líklega 1928. Var það vörubifreið af tegundinni sem nefnd var Gamli-Ford og var hún notuð. Þá voru enn óbrúaðar Þverá og Markarfljót og honum því ekið yfir Þverárála og aura úr Fljótshlíð heim í Dalssel. Þar tóku elstu synir Auðuns fagnandi á móti þróunarendi þessu og náðu brátt hver eftir annan valdi yfir tæknigrip þessum í þágu verslunarbóndans. Auðunn sá þegar hvaða möguleikar fólust í slíku ökutæki og keypti nýjan fólksflutningabíl af Ford-gerð og fékk elsta syni þeirra Guðlaugar, Ólafi, hann í hendur, en hann hafði þá þegar aflað sér akstursréttinda. Gerði nú Auðunn bíl þennan út undir stjórn sonar síns til fólksflutninga austan úr Vík út að Markarfljóti við Þverá. Þar voru austan-farþegar ferjaðir yfir á til framhalds ferðar suður eftir Fljótshlíð.
Þess er að geta að Ólafur hafði tekið bílpróf sitt fyrir kaupin á fyrsta bíl Auðuns og það var hann sem 1932 ók fyrstur manna bíl Auðuns. inn í Þórsmörk. Með honum í för voru bræður hans, Leifur og Hafsteinn og leið þeirra lá á milli fljóta.
Til marks um hug Auðuns til tónlistar má minnast þess að þegar hann sótti heim stórhátíð á Þingvöllum 1930 hafði hann með sér það rúmt lausafé í vasa að hann gat keypt stórpíanó það er þjónað hafði hljómlistarþætti hátíðarinnar og flutti heim í Dalsselsstofu til stórmenningarauka í sinni sveit og víðar.
Í eftirmælum um Auðunn Ingvarsson kemst Þórður Tómasson safnvörður að Skógum m.a. svo að orði: ”Fyrir réttum 60 árum hóf ungur bóndi búskap í Dalsseli undir Eyjafjöllum. Á skömmum tíma komst hann í röð þeirra manna er öðrum fremur settu svip á sveit sína og hérað...”
„Auðunn var hamingjumaður, þrátt fyrir margt mótdrægt, sem á daga hans hafði drifið. Hann var stórbrotinn í gerð og þungur á bárunni, ef við erfitt var að etja, en kvaddi veröld sáttur við Guð og menn. Að öllum var hann fríður sýnum og að öllu vel á sig kominn, verklaginn og hafði góðar forsagnir...“
Í eftirmælum um Guðlaugu húsfreyju í Dalsseli kemst séra Jón M. Guðjónsson í Holti m.a. svo að orði:
„Það alkunna er að í Dalsseli hefur um 40 ára skeið búið stórbrotinn áhuga- og athafnamaður. Og Dalsselsheimilið er löngu víðfrægt fyrir höfðingsbrag. Svo mjög sem heimilisfaðirinn hefur sett sitt mót á það heimili, hefur það engu að síður borið svip húsmóðurinnar. Með mannkostum sínum, ráðdeild, örlæti og ljúflyndi átti hún sinn stóra hlut í að gera garðinn fagran...“
„Það er löngu kunnugt þessari þjóð, hvernig þau Dalsselshjónin tóku gestum sínum, hverjum sem að garði bar. Þau voru samhent í rausn og kærleika...“
„Guðlaug í Dalsseli var þó fyrst og fremst góð móðir. Þar sem börnin hennar voru skildi hún til hlítar hlutverk sitt, göfugasta og háleitasta hlutverkið í lífinu. Ég hef ekki séð móðurástina fegurri og hreinni en hjá henni.“
„Hún var prúð kona og grandvör í einu og öllu, fremur dul, en einlæg, þýð og glaðlynd. Hún var björt og sviphrein, með viðkvæmt hjarta...“
„Þeir eru allir ríkari, sem þekktu Guðlaugu í Dalsseli, og fengu að njóta með henni þó ekki væri nema einnar stundar hins bjarta og ylríka liðna dags...“
Með síðbúinni kveðju frá tengdasyni, sem átti því láni að fagna, að hafa notið samfylgdar yngstu dóttur þeirra á lífsbrautargöngu.
Konráð Bjarnason